Færsluflokkur: Matur og drykkur
Ef þið eigið kjúklinbringu í frystinum, þá vantar bara smá beikon, rauðlauk, smurost með kryddblöndu, eina sítrónu og þitt uppáhaldspasta. Beikonið skorið í bita og steikt, kjúklilngurinn skorinn í bita og bætt við, svo lauknum. Sítrónusafi og ostur settur samanvið. Leyft að malla á meðan pastað síður í saltvatni. Öllu síðan skellt saman + einni ausu af pastasoðinu. Borðist með fersku salati að eigin vali og góðu hvítvíni eða Gvendabrunnavatni.
Matur og drykkur | Fimmtudagur, 29. mars 2007 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)