Var ekki verið að tala um að taka til!

Hvernig stendur á því að gerandinn í Veðurstofueineltinu, sem kostaði ríkið 500.000 krónur, situr enn í sínu starfi? Í einkafyrirtækjum er nú yfirleitt hreinsað út það lið sem veldur fyrirtækinu tjóni en hjá ríkinu er mönnum hampað og kannski veitt stöðuhækkun þegar þeir þeir valda tjóni. Hví?

Er bara verið að taka til í Kópavogi og hjá Hannesi Smárasyni? Hvað með alla hina? Er nóg að þeir hringi í fréttamenn og segist hugsa heim?

Annars vinn ég í sama húsi og Rannsóknarnefnd Alþingis og sýnist mér nú að nefndin sú sé í vexti því hún hefur dreift sér um húsið, út og suður, upp og niður. Heyrst hefur af ýmsum frægum á göngum og í lyftu hússins og meira að segja á skrítnum tímum sólarhringsins. KANNSKI ER VON.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband