Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Hvernig stendur á því að gerandinn í Veðurstofueineltinu, sem kostaði ríkið 500.000 krónur, situr enn í sínu starfi? Í einkafyrirtækjum er nú yfirleitt hreinsað út það lið sem veldur fyrirtækinu tjóni en hjá ríkinu er mönnum hampað og kannski veitt stöðuhækkun þegar þeir þeir valda tjóni. Hví?
Er bara verið að taka til í Kópavogi og hjá Hannesi Smárasyni? Hvað með alla hina? Er nóg að þeir hringi í fréttamenn og segist hugsa heim?
Annars vinn ég í sama húsi og Rannsóknarnefnd Alþingis og sýnist mér nú að nefndin sú sé í vexti því hún hefur dreift sér um húsið, út og suður, upp og niður. Heyrst hefur af ýmsum frægum á göngum og í lyftu hússins og meira að segja á skrítnum tímum sólarhringsins. KANNSKI ER VON.
Stjórnmál og samfélag | Laugardagur, 27. júní 2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Óásættanleg framkoma forsetans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Miðvikudagur, 17. júní 2009 (breytt kl. 11:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Reyndi að fela hundruð milljóna fyrir skattinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Miðvikudagur, 22. apríl 2009 (breytt kl. 18:20) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Líst illa á að lífeyrissjóðir flytji fé heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Sunnudagur, 5. október 2008 (breytt kl. 17:38) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ótrúlegt að horfa upp á fyrrverandi sjálfstæðismann og núverandi sjálfstæðismann báða af gamla skólanum reyna að sannfæra okkur Reykvíkinga um að þeir beri hag okkar fyrir brjósti og séu að fara að gera góða hluti í okkar þágu. Það sást nú bara á yngri kynslóðinni sem stóð fyrir aftan þá að hún keypti rökin ekki heldur.
Ég veit ekki í hvaða grínhandriti þessir menn eru fastir þó svo þeir hafi málefnalista upp á eina heila síðu í höndunum, aukum þjónustu, lækkum skatta, borgum helst fimm borgarstjórum laun samtímis - það er svo ódýrt.
Ég get ekki betur séð en að valdagræðgin ráði ferðinni svo er líka svo flott að hafa starfsheitið "borgarstjóri" í ferilskránni.
Hvaða vinir fá nú hvað? Hvað á selja hverjum? Hver á græða?
Ég bíð spennt eftir þeim degi sem þessi kynslóð pólitíkusa lætur af störfum og hleypir þeirri næstu að, í þeirri trú að hún hafi kjarkinn sem þarf til að hræra upp í hlutunum, læra af mistökum forfeðranna og breyta og bæta það sem þarf.
Ólafur og Vilhjálmur stýra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Mánudagur, 21. janúar 2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stjórnmál og samfélag | Fimmtudagur, 30. nóvember 2006 (breytt 27.12.2006 kl. 19:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja, ekki veit ég hvar er best að byrja því af nógu er að taka í þjóðfélagsmálum hér á Fróni þessa dagana. Útlendingaumræða í algleymingi, aftur og aftur og alltaf eitthvað nýtt, ef það er ekki fjöldinn og atvinnan þá eru það fordómarnir og aðbúnaðurinn og svo Árni Johnsen. Maður er enn að tapa sér yfir kallinum og þó að Spaugstofan grínist með -tæknilegu mistökin- er óhætt að segja að öllu gríni fylgir einhver alvara og alvaran er sú að sá sem stelur frá þjóðinni hefur engan rétt á því að fara á launaskrá hjá þjóðinni aftur. Og að ráðamenn skuli vera að afsaka þetta, þora menn ekki lengur að hafa skoðanir, af hverju viðurkenna þeir ekki bara að það sé skemnmt epli í eplakassanum og því beri að henda. Ég er viss um að Árni greyið þarf ekki að fara á atvinnuleysisbætur hann á örugglega nóg af vinum sem eru æstir í að ráða hann í vinnu og borga honum sanngjörn laun. En nóg um það allt saman ég ætla að halda áfram að halda í þá von að til séu sjálfstæðismenn sem stoppa þetta rugl í tíma.
Bíddu voru menn ekki eitthvað að tala um hvali - hvalveiðar - morð á hvölum. Er umræðan búin? Eru Bretar enn í fílu? Bíddu, Bretar eru að myrða hverja? Held þeir ættu bara að láta okkur í friði þessir and......
Stórir strákar og boltar, alltaf gaman að horfa á sæta stráka elta bolta - það væri líka smart að lækka aðeins launin þeirra og brauðfæða eina þjóð eða svo - ja bara smá pæling.
En var ekki gaman að fá smá snjó? Allt svo hreint og bjart. Væri til að fá hvít jól í ár.
Voru þið búin að heyra þennan: Steini bóndi dó og ekkjan hans hringdi inn svohljóðandi dánartilkynningu í Moggann: -Steini er dauður-, þeim hjá Mogganum þótti þetta nú heldur snubbótt og sögðu að lágmarksorðanotkun í dánartilkynningum væri 6 orð. Ekkjan hugsaði sig um í smá stund, en svo kom það: Steini er dauður, Toyota til sölu.
Stjórnmál og samfélag | Miðvikudagur, 22. nóvember 2006 (breytt kl. 23:36) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)